
Leikmannasamtök
Íslands
Hagsmunasamtök íþróttafólks á Íslandi.
Aðild veitir aðgang að ráðgjöf, stuðningi og fræðslu fyrir íþróttafólk
Leikmannasamtök Íslands
Bakland fyrir íþróttafólk
Við stöndum með þér innan og utan vallar
⚖️
Samningar
& Réttindi
💰
Fjármál Fyrir
Íþróttafólk
🛡️
Aðstoð
og Stuðningur
📣
Rödd
íþróttafólks
Afreksíþróttafólk
eru vinnandi einstaklingar
Ekki allar spurningar eiga sér einföld svör.
Stundum þarftu ráðgjöf
Stundum þarftu aðstoð
Stundum þarftu bara einhvern sem skilur aðstæður íþróttafólks.
Leikmannasamtök Íslands eru hér til að veita íþróttafólki öruggan stað til að leita til.
Þegar þú ert í vafa, hafðu samband - Það er alltaf í lagi að spyrja.
Sem meðlimur færðu aðgang að:
-
Trúnaðarráðgjöf
-
Samnings- og lögfræðiaðstoð
-
Fjármálafræðslu fyrir íþróttafólk
-
Aðstoð vegna ágreinings- og annarra mála
-
Hagsmunagæslu fyrir hönd íþróttafólks
We are the players
Leikmannasamtök Íslands eru hluti af alþjóðlegri hreyfingu leikmanna.
FIFPRO
Í hlaðvarpi FIFPRO - Footballers Unfiltered - tala leikmenn við leikmenn um raunverulegar upplifanir þeirra af því að vera atvinnumaður í íþróttum.
Opin og heiðarleg samtöl þar sem manneskjan á bakvið íþróttamanninn fær tækifæri að leiða samtalið.
Leikmannasamtök Íslands eru aðili að FIFPRO - alþjóðasamtökum leikmanna sem standa vörð um réttindi atvinnuknattspyrnufólks í meira en 70 löndum. Saman vinna leikmannasamtök að því að bæta starfsumhverfi leikmanna, verja réttindi þeirra og styðja þau innan sem utan vallar.
Leiðir utan vallar
LSÍ vill styðja við þig, ekki bara sem leikmann heldur sem manneskju. Hér finnur þú leiðir að úrræðum sem geta hjálpað þér að vaxa utan vallar, hvort sem þú ert að leita að sveigjanlegu námi eða faglegum stuðningi við andlega heilsu. Við veitum ekki þessa þjónustu sjálf en við bendum á trausta samstarfsaðila og fagaðila sem skilja þarfir íþróttafólks.
Andleg heilsa
Andleg heilsa íþrottafólks er er mikilvægt málefni. Við erum í samstarfi við hóp sérfræðinga sem geta aðstoðað þig.
Nám samhliða íþróttaiðkun
Bifröst hefur reynst íþróttafólki vel varðandi nám á meðan ferilinn er í fullum gangi. Leikmannsamtökin og Bifröst vinna saman að því að hafa hag íþróttafólks að leiðarljósi í námi.





