top of page

Jafnréttisbarátta kvennaknattspyrnunnar

17. apr. 2023

Jafnréttisbarátta kvennaknattspyrnunnar

Leikmenn Vals og Stjörnunar munu bera fjólublá armbönd í leik Meistara Meistaranna til að sína samstöðu í jafnréttisbaráttu kvenna í knattspyrnu. 


Frumkvæðið að því að klæðast fjólubláu - sem táknar jafnrétti - var fyrst tekið fram af Kanada og öðrum kvennalandsliðum í landsliðsglugganum í febrúar síðastliðnum, þar sem vandamál kanadíska kvennalandsliðsins gegn knattspyrnusambandinu sínu jókst, samhliða áframhaldandi vandamálum um allan heim sem leikmenn hafa tekið upp. 


Of oft þurfa knattspyrnukonur að fórna eða hætta hluta ferils síns til að framkvæma nauðsynlegar breytingar - jafnvel þó að þessar breytingar snúist um grundvallarréttindi eins og sanngjarna meðferð, virðingu og jafnrétti. Á hæsta stigi knattspyrnunnar hafa orðið framfarir í átt að betri framtíð fyrir kvennaboltann. 


FIFA lýsti nýlega yfir að það myndi hefja leið til fulls jafnréttis fyrir HM kvenna 2027, eftir sameiginlegar aðgerðir sem yfir 150 leikmenn úr 25 kvennalandsliðum gripu til, með stuðningi FIFPRO og leikmannasamtaka. 



Með þessari skuldbindingu sem er tilbúin til að vera lögfest mun FIFPRO og aðildafélög halda áfram að þrýsta á og styðja framfarir í átt að jöfnum aðstæðum á landsvísu fyrir leikmenn um allan heim. 


Grein frá FIFPro:https://fifpro.org/en/who-we-are/what-we-do/foundations-of-work/women-s-national-teams-to-keep-wearing-purple-wristbands-symbolising-equality/ 


Leikur Vals og Stjörnunar hefst kl:19:30 á Origo vellinum. 


Við hvetjum alla til að mæta og sína samstöðu með leikmönnunum og þar með réttindum kvenna í knattspyrnu.

bottom of page