
Sif Atladóttir
Hvað eru leikmannasamtök, hvers vegna þau skipta máli og af hverju styrkurinn liggur í fjöldanum.
Á þessum tíma árs eru margir leikmenn í síðasta fasa undirbúningstímabilsins. Undirbúningsmót eru að nálgast loka leik og liðin að klára æfingarferðir sínar. Sem leikmaður er þetta sá tími ársins þar sem þú ert að ljúka þyngsta hluta vetrarins. Líkaminn er þungur, þreytan mikil — en næsta skref er snerpa, léttleiki og taktík, því nú styttist í fyrsta alvöru leik keppnistímabilsins 2026.
Hugur okkar leikmanna er á sumrinu. Nýtt mót, ný tækifæri — en á sama tíma er undirbúningurinn líka til að takast á við langt og strangt keppnistímabil. Forðast meiðsli, undirbúa sig andlega fyrir allar mögulegar aðstæður. Því í lok tímabilsins viljum við horfa til baka og fagna árangrinum sem við lögðum inn allt árið.
En á sama tíma erum við að kveða niður áhyggjur sem plaga okkur. Leiktími, meiðsli, vonbrigði, fjarvera, lífið fyrir utan fótboltann. Náum við væntingum okkar? Stöndumst við væntingar stuðningsmanna? Hvað kemur eftir tímabilið?
Þetta er tími tækifæranna — og það er það sem gerir íþróttirnar að einni bestu skemmtun í heimi. Þegar flautað er til leiks er óvissan svo mikil að hvert augnablik skiptir máli.
Við lifum og fórnum flestu fyrir íþróttina, því við sjáum drauminn í hendi okkar.
„Hvað með það að ég fái ekki greitt strax — það kemur. Lífeyrissjóður? Ég er ekkert að pæla í því. Ég fæ bara lagt inn á mig mánaðarlega. Ég velti ekkert fyrir mér varðandi skattinn.“
Við lifum og fórnum flestu fyrir íþróttina — en hver mun gjalda fyrir það þegar kerfið krefst meira af okkur en gleymir að byggja upp þann hluta sem snýr að okkur leikmönnunum?
Leyndir skattar, ólöglegar riftanir á samningum, réttindi íþróttafólks, stofnun fjölskyldu og réttindi foreldra, sumarhlé, öryggi leikmanna — og svo mætti lengi telja.
Öll viljum við trúa að við lendum ekki í þessum aðstæðum.En sannleikurinn er sá að ef þetta kemur fyrir einn, þá eru líkurnar miklar að þetta komi fyrir annan.
En í mörgum tilfellum teljum við okkur standa ein í þessum aðstæðum. Ekki vegna þess að við viljum það, heldur vegna þess að við vitum ekki hvert við eigum að leita.
Oft er það ekki skortur á styrk sem veldur því að leikmenn segja ekki frá, heldur frekar skortur á upplýsingum og stuðningi.
Þarna kemur hlutverk leikmannasamtakanna inn. Að vera til staðar — ekki bara þegar eitthvað fer úrskeiðis, heldur áður en það gerist.
Leikmannasamtökin eru þau sem vinna fyrir leikmennina, fyrir íþróttafólkið. Þau eru til þess að styrkja umhverfi íþróttafólks og þrýsta á breytingar í þessari hraðþróun atvinnumennskunnar sem við sjáum um allan heim.
Þau eru þarna til að leita til ef laun eru ekki greidd, ef brotið er á réttindum, og til að vernda og styðja við íþróttafólk — bæði á meðan ferlinum stendur og eftir að honum lýkur.
Þetta snýst ekki um það sem gerist inni á vellinum, heldur það sem gerist fyrir utan: launagreiðslur, fæðingarorlof, vernd og velferð leikmanna, fræðsla og stuðningur.
Í raun þýðir það að vera hluti af leikmannasamtökunum að þú ert hluti af einhverju stærra. Þú ert hluti af heild afreksíþróttafólks sem teygir sig langt út fyrir landssteina Íslands, því leikmannasamtökin eru hluti af FIFPRO.
FIFPRO eru leikmannasamtök heims, sem lyfta röddum og hagsmunum leikmanna í kerfi sem hefur ekki alltaf sett leikmanninn í forgrunn.FIFPRO eru leikmennirnir — og það eru leikmennirnir sem eru FIFPRO.
Að vera afreksíþróttamaður er nógu erfitt — og enn erfiðara þegar kerfið er ekki byggt upp fyrir þig. Þá er gott að vita að það er alltaf einhver í þínu horni.
Við lifum á spennandi tímum þar sem íþróttir eru mögulegur starfsvettvangur — en hann er krókóttur.
Stuðningur skiptir máli til að forðast að litlar ákvarðanir hafi stórar afleiðingar:
að skrifa undir samning sem þú skilur ekki eða að bíða eftir launum sem berast ekki.
Við trúum oft að þetta komi ekki fyrir okkur. En sannleikurinn er sá að ferill í íþróttum er ófyrirsjáanlegur.
Leikmannasamtökin eru ekki bara til staðar þegar eitthvað fer úrskeiðis. Þau eru til þess að standa með þér allan tímann.
Styrkurinn liggur í fjöldanum — vegna þess að ein rödd er auðvelt að afskrifa

