Fæðingarorlof fyrir íþróttafólk
Hvað skiptir raunverulega máli
Fæðingarorlof byggist ekki á því sem þú ert að gera þegar barnið fæðist.
Það byggist á því sem þú varst að gera fyrir það!
Kerfið horfir sérstaklega á:
-
síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu (réttur).
-
og eldri tekjur til að reikna greiðslur.
Þess vegna skiptir skipulag fyrirfram öllu máli.
Hvað þú gerir 6-12 mánuðum áður - skiptir meira máli en það sem þú skrifar undir í dag.
Til að fá góðar greiðslur í fæðingarorlofi þarft þú að passa þetta:
Hugsa 6-12 mánuði aftur í tímann
Afhverju skipta 6-12 mánuðir máli?
Kerfið horfir aftur í tímann
6 mánuðir:
-
Til að athuga:
-
Hvort þú hafir byggt upp rétt þinn í kerfinu
-
12 mánuðir:
-
Til að reikna:
-
Hversu mikið þú færð greitt í fæðingarorlofinu
-
Útreikningarnir eru: innkoma / síðustu 12 mánuðir
-
Kerfið notar innkomuna þína - oftast síðustu mánuðina fyrir fæðingarorlof - til að reikna hvað þú færð greitt.
Ef innkoman hefur verið stöðug í nokkurn tíma, þær eiga greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði að spegla það.
Aftur á móti, ef það hafa orðið "göt", tímabil með lágum greiðslum eða tekjur ekki skráðar í kerfið - þá gætu greiðslurnar þínar lækkað.
Einföld dæmi:
Gott staða:
-
Þú ert með tekjur úr aðalvinnunni (utan íþrótta) og ert að fá greiðslur úr íþróttum.
-
Innkoman er stöðug.
-
Greiðslur - bæði frá aðalvinnunni og íþróttum - eru skráðar í kerfið mánaðarlega.
-
Þá færðu nálægt því sem þú færð útborgað venjulega.
-
Áhættusöm staða:
-
Þú ert á milli samninga
-
Þú ert með "göt" í mánaðartekjum (jafnvel bara 1-2 mánuði)
-
Innkoman er skráð að fullu inn í kerfið (oftast íþróttatekjurnar)
-
Þú gætir dottið niður um flokk í kerfinu og þ.a.l. fengið töluvert lægra útborgað frá Fæðingarorlofssjóði.
-
Upplifun Sifjar:
"Ég hélt að samningurinn sem ég var á myndi skilgreina hvað ég myndi fá greitt í fæðingarorlofinu.
En kerfið horfði á skráða innkomu hjá mér síðustu mánuðina - og vegna þess að ég var með "gat" (tekjulausa mánuði) þá var ég færð niður um flokka".
Greiðslurnar úr Fæðingarorlofssjóði eru byggðar á skráðri innkomu, mánuðina fyrir fæðingu.
Tekjur skráðar í kerfið
Afhverju skiptir skráning máli?
Kerfið sér ekki:
-
Samninginn þinn
-
Loforð
-
Greiðslur sem "koma seint"
-
FIFA regluverkið eða annað íþróttaregluverk
Kerfið sér:
-
Skráðar tekjur hjá Skattinum.
-
og hvort greitt er:
-
Skattur
-
Lífeyri
-
Tryggingagjald
-
Þess vegna skiptir meira máli:
Hvernig tekjurnar eru skráðar
en
Hvenær þú færð þær.
Skráðu íþrótta-innkomuna þína - þó að hún sé lág - það getur hjálpað þér með fæðingarorlofssjóðinn seinna.
Vera virk/ur á vinnumarkaði
Hvað þýðir 25% vinna?
Kerfið segir:
-
Þú þarft að vera að minnsta kosti 25% virk/ur á vinnumarkaði.
Það þýðir:
Fyrir launþega:
-
um 25% af fullu starfi
-
ca. 40-45 klst á mánuði.
-
Fyrir verktaka:
-
Að þú sért með tekjur sem samsvara a.m.k. 25% starfi.
og að þær séu:
-
skráðar
-
skattlagðar
Mikilvægt
Þetta snýst ekki bara um tíma
Þetta snýst um:
Skráðar tekjur í kerfinu.
Dæmi sem virka ekki:
-
Þú æfir alla daga með liðinu
-
En færð ekki greitt
-
Þá ertu ekki virk/ur á vinnumarkaðinum.
-
Dæmi sem virkar:
-
Þú færð reglulegar greiðslur
-
Þær eru skráðar í kerfinu
-
Þá ertu virk/ur á vinnumarkaðinum.
-
Samfelldar tekjur - hvað þýðir það?
"Samfelldar tekjur" þýðir:
Að þú sér:
-
með stöðugar mánaðarlegar tekjur
-
skráð/ur í vinnu
-
án fjarveru ("göt" í mánaðargreiðslum).
yfir eitthvað tímabil fyrir fæðingu.
Gott dæmi:
-
Þú ert á samningi janúar - desember.
-
Færð launin þín í hverjum mánuði.
-
Kerfið sér stöðuleika
-
Slæmt dæmi:
-
Samningur endar í október.
-
Engar tekjur nóvember og desember.
-
Þá myndast "gat".
-
Afleiðing:
Kerfið getur metið að þú hafir:
-
minni rétt
-
lægri greiðslur
Fyrir íþróttafólk
Þetta er algengt þegar:
-
Samningar eru stuttir
-
Félag "tekur pásu" í greiðslum (seinar greiðslur, samningur einungis greiddur á keppnistímabili, o.s.frv)
Þetta getur haft beinar afleiðingar á hversu mikið þú færð greitt frá Fæðingarorlofssjóði.
Algeng mistök hjá íþróttafólki
Íþróttafólk lendir oft í þessu:
-
"Ég fæ þetta borgað seinna"
-
"Þetta er bara milli mín og félagsins"
-
"Ég er að æfa svo ég er í vinnu"
-
"FIFA reglurnar vernda mig"
Íslenska kerfið virkar ekki þannig.
Sem íþróttafólk, forðist:
-
Að vera samningslaus (þó það sé bara í nokkra mánuði)
-
Að fá greitt "utan kerfis".
-
Að fresta greiðslum.
-
Að treysta að þetta "Reddist"
-
Halda að FIFA reglur tryggi þetta
* Mikilvægar upplýsingar varðandi FIFA regluverkið.
FIFA regluverkið verndar samninginn þinn, en ef þú ert ekki atvinnumaður á fullum launum
- Fótbolti er þitt aðalstarf -
þá virkar fæðingarorlofs-kerfið öðruvísi fyrir þig.
Ef mánaðarleg innkoma þín frá vinnu er svona:
-
Aðal-tekjustarf (vinnan fyrir utan fótboltann sem þú færð stærstan hluta launa þinna frá).
-
Fótbolti sem annað starf (fótboltalaunin eru viðbót við tekjur úr aðalstarfinu).
Þá horfir kerfið á hvað er skráð hjá Skattinum - sem er oftast aðalstarfið þitt (og ekki fótbolta-tekjurnar).
Þetta er ástæðan afhverju það er mikilvægt að skrá tekjurnar úr íþróttunum inn í kerfið - Þær munu gefa þér hækkun á tekjum í kerfinu.
Raunveruleiki afreks-mæðra
Í íþróttum:
-
hættir þú oft að spila/keppa áður en barnið fæðist.
-
samingurinn þinn er enn í gildi, og þú ættir að fá greitt samkvæmt honum.
-
-
kemur þú fyrr til baka í íþróttastarfið eftir fæðingu heldur en þú myndir gera í starf á almennum vinnumarkaði.
-
þú ert að öllum líkindum með óreglulegar tekjur úr íþróttum.
Kerfið tekur ekki tillit til þessa hluta sjálfkrafa.
Það er þess vegna sem þú þarft að skipuleggja þetta sjálf.
Hvað þú ættir að gera
Hugsaðu 6-12 mánuði fram í tímann
Hugsaðu fram í tímann.
Ekki bara þegar þú verður ólétt - heldur 6-12 mánuðum áður.
Jafnvel þótt það sé undarlegt að horfa 6-12 mánuði fram í tímann, þá er gott að skipuleggja hvernig komandi mánuðir geta litið út fjárhagslega.
Sjáðu til að tekjurnar eru skráðar
Gakktu úr skugga um að tekjurnar þínar séu skráðar
Sérstaklega ef þú ert verktaki
Forðast "göt " í mánaðartekjum
Reyndu að tengja saman samningana til að forðast að vera samningslaus einhverja mánuðina.
eða a.m.k. reyndu að vera með skráðar tekjur í hverjum mánuði.
Spurðu réttu spurninganna
-
Hvernig eru tekjurnar mínar skráðar?
-
Er greitt tryggingagjald?
-
eða hver greiðir það?
-
-
Er ég virk/ur í kerfinu?
-
Eru mánaðarlaunin mín skráðar í skattakerfið?
-
Allar spurningar leyfilegar - og engin spurning á ekki rétt á sér.
Það er þinn réttur að vita þetta.
Ef þú ert óviss, leituðu ráða hjá:
-
Bókara
-
Leikmannasamtökin
-
Sérfræðing
Real Talk
Fæðingarorlof snýst ekki bara um þegar barnið kemur.
Það snýst um hvernig þú hefur byggt upp rétt þinn áður.
Aftur í æfingar á meðan þú ert í fæðingarorlofi
Íþróttafólk vilja oft byrja snemma aftur:
-
fara á æfingar
-
koma sér í form
-
byrja að spila
Það er eðlilegt - en það þarf að passa upp á hvernig það er gert.
Hver er meginreglan?
Ef þú ert í fæðingarorlofi þá skiptir máli:
-
Hversu mikið þú ert í orlofi - hvert er (%) hlutfallið þitt í orlofi?
-
og hversu mikið þú vinnur samhliða orlofinu.
Dæmi:
Ef þú ert í:
-
80 % fæðingarorlofi
Þá máttu
-
Vinna 20% með því.
Þetta getur þýtt:
-
Taka þátt í æfingum
-
Vera með takmarkaða þátttöku með liðinu
-
Byrja rólega aftur
En - Það sem þú þarft að passa!
-
Þetta snýst ekki bara um tíma - heldur líka um tekjur
MEGINREGLA
Tekjur úr íþróttum + greiðslur úr fæðingarorlofssjóði
mega ekki vera:
Hærri en það sem þú varst með áður!
Hvað getur gerst ef þú ferð yfir?
-
Greiðslur geta lækkað
-
Þær geta verið endurreiknaðar
-
Þú gætir þurft að endurgreiða
Sérstaklega fyrir íþróttafólk:
Í íþróttum getur þetta verið flókið.
Þú getur verið að:
-
æfa mikið,
-
en fá lítið greitt.
eða
-
fá greitt,
-
án þess að "vinna hefðbundið starf".
Kerfið horfir fyrst og fremst á:
Tekjurnar - ekki bara virkni þína
Einfalt dæmi:
Gott:
-
80% orlof
-
20% laun frá félagi
-
Innan marka
-
Áhætta:
-
80% orlof
-
en færð full laun frá félagi (ef samningurinn þinn er stór hluti af mánaðartekjum þínum).
-
Þá getur þú farið yfir áætluð mörk í kerfinu.
-
Þess vegna er mikilvægt að skrá íþróttainnkomuna þína rétt inn í kerfið - alveg eins og með aðalvinnuna fyrir utan íþróttina.
Þetta gefur þér svigrúm til þess að snúa aftur til æfinga - fá greiðslur frá íþróttinni - án þess að taka áhættu varðandi fæðingarorlofssjóðinn þinn.
Í endurkomu í íþróttum -
Hvað er mikilvægt að gera!
Skipuleggja endurkomu
Ekki byrja að fá greiðslur "óvart eða óvænt"
Skilgreindu hlutverkið þitt og (%) hlutfallið með félaginu.
Tala við félagið eða samningsaðila
Hvernig eru greiðslurnar skráðar?
Eru þær í samræmi við starfshlutfall
Afar mikilvægt ef þú ert með aðaltekjurnar þínar frá öðrum stað en íþróttum.
Fá ráðgjöf
Áður en þú byrjar aftur - talaðu við:
- Bókara
- Sérfræðinga (t.d. fæðingarorlofssjóð)
- Leikmannasamtökin

